Andri Snær tekur við verðlaununum úr hendi Jóhanns Páls ráðherra. Ljósm. Stjórnarráðið

Andri Snær hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, veitti í gær, á Degi íslenskrar náttúru, Andra Snæ Magnasyni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem unnið hefur markvert starf á sviði náttúruverndar og er þetta í sautjánda sinn sem hún er afhent. „Andri Snær hefur um árabil verið ötull málsvari náttúrunnar og vakið almenning til vitundar um náttúruvernd og loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélag. Hann hefur meðal annars beint sjónum að verndun íslenskrar náttúru, jöklum landsins, súrnun sjávar og þeim grundvallarbreytingum sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér,“ segir í rökstuðningi ráðuneytisins.