
Álverið er nú komið í nær full afköst
Eftir að fleiri en einn spennir í álveri Norðuráls á Grundartanga brunnu samtímis yfir í október á síðasta ári var útlitið afar dökkt varðandi tímann sem það tæki að gera við og gangsetja kerin að nýju. Þegar óhappið varð stöðvaðist framleiðsla í annarri af tveimur kerlínum verksmiðjunnar. Þetta olli því að álframleiðsla á Grundartanga skertist um tvo þriðju. Framleiðsla í hinni kerlínu Norðuráls var þó áfram stöðug og hafði bilunin engin áhrif á rekstur hennar. Strax var hafin leit að spennum, nýjum sem notuðum, til að lágmarka þann tíma sem framleiðsla lægi niðri í meirihluta verksmiðjunnar. Sú vinna skilaði góðum árangri og nú tíu mánuðum síðar er verksmiðjan komin í nær full afköst, miklu fyrr en óttast var í október 2025. Nú starfa um 670 manns í álverinu.