Íslensk hollusta með sýnishorn afurða á ráðstefnunni en það framleiðir m.a. berjasafa, áfenga og óáfenga drykki úr fjallagrösum og heilsubita úr söli og stórþörungum. Texti og myndir: ÓHK

Þörungar gætu orðið ný stoð í íslenskri verðmætasköpun

Margvísleg tækifæri eru til uppbyggingar þörungaiðnaðar á Íslandi og íslensk fyrirtæki feta ólíkar leiðir við að breyta þörungum í verðmætar afurðir. Þetta kom fram á ráðstefnu um þörunga sem haldin var í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi í gær. Þar var fjallað um ræktun, nýtingu og vinnslu þörunga, allt frá matvælaframleiðslu til líftækni, fæðubótarefna, textílvinnu og lækningavara. Sameiginlegur þráður í erindum forsvarsmanna fyrirtækjanna var að Ísland búi yfir góðum forsendum til uppbyggingar greinarinnar. Þar vega þungt hreinn sjór, endurnýjanleg orka, þekking úr sjávarútvegi og fiskeldi og öflugt rannsókna- og nýsköpunarumhverfi. Tækifærin felast ekki aðeins í öflun hráefnis heldur einnig í fullvinnslu þess hér á landi. Stórþörungar geta meðal annars nýst í matvæli, fóður, áburð, snyrtivörur og ýmiss konar lífefni.