
Þær Maren, Fríða, Heiður og Helga bregða á leik fyrir myndavélina á Valsvellinum fyrr í sumar. Texti og myndir: TFK
Stelpurnar í fjórða flokki ÍA hafa staðið í ströngu
Nú er haustið handan við hornið og knattspyrnulið landsins að klára verkefni sumarsins. Það á einnig við um lið fjórða flokks ÍA en félagið gerir út tvö lið í A og B deild Íslandsmótsins. Liðið er skipað stúlkum af Akranesi, Borgarnesi og af Snæfellsnesi þar sem ekki er hægt að manna hóp til keppni í Íslandsmótinu. Liðin hafa bæði staðið sig með mikilli prýði og hefur gleðin verið í fyrirrúmi hjá þessum duglegu stelpum. Nú eru aðeins tveir leikir eftir en liðið þarf að ferðast til Vestmannaeyja næsta laugardag og svo á eftir að finna dagsetningu til að spila við Fylki á Akranesi.