
Áin Nemunas. Allar ljósmyndir: Flemming Madsen
Lokakafli í ferðasögu Flemmings um Evrópu
Öðrum hluta Evrópuferðalagsins lauk þar sem Pólland kvaddi með regni og Litháen bauð góðan daginn með sömu rigningunni. Var þá kominn miðvikudagurinn 8. júlí og liðnar þrjár vikur frá upphafi ferðalagsins. Vegaskiltin voru ennþá óskiljanleg með öllu, líkt og í Póllandi, en umferðarmenningin hafði versnaði til muna. Mikið var um framúrakstur á miklum hraða og algengt var að að sjá stóra vöruflutningabíla sikksakka milli akstursbrauta, jafnvel í þéttri borgarumferð.