Jöfn og stöðug fjölgun íbúa í Dalabyggð

Fjöldi íbúa í Dalabyggð er í sögulegu hámarki það sem af er þessum áratug og þarf að fara tíu ár aftur til að finna sambærilegan fjölda. Samkvæmt Þjóðskrá eru nú búsettir 677 íbúar í sveitarfélaginu. Árið 2020 voru 626 búsettir í Dölum. Þetta er því 7,5% fjölgun á sex árum. Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri kveðst í samtali við Skessuhorn fagna þessari þróun. „Ekki síst er fjölgun íbúa jákvæð ef borið er saman við önnur sveitarfélög í hinum dreifðari byggðum. Við skynjum jákvæðni í samfélaginu. Aðstæður hér breyttust verulega til hins betra þegar ný sundlaug og íþróttahús var tekið í notkun í lok febrúar. Íbúar eru duglegir að nýta aðstöðuna og gestir í sund eru langtum fleiri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Þetta og fjölmargt fleira fyllir okkur bjartsýni,“ segir Lilja Björg.