Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn

Treyjudagurinn verður haldinn í fyrsta sinn á Íslandi föstudaginn 4. september. Börn með krabbamein standa að átakinu og eru landsmenn hvattir til að klæðast uppáhalds treyjunni sinni þennan dag og sýna þannig börnum með krabbamein stuðning og samstöðu.

Treyjudagurinn á rætur að rekja til Englands, þar sem hann var fyrst haldinn árið 2013, en núverandi fyrirkomulag byggir á danskri fyrirmynd frá árinu 2019. Noregur og Svíþjóð bættust fljótlega í hópinn og hefur átakið síðan sameinað þúsundir einstaklinga, fyrirtækja og íþróttafélaga í stuðningi við börn sem glíma við krabbamein.

Fyrirtæki, stofnanir, íþróttafélög og einstaklingar eru hvött til þátttöku. Hugmyndin er einföld; að mæta í treyju, taka mynd og deila henni á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #treyjudagurinn. Nánari upplýsingar um átakið má finna á vef Treyjudagsins.