Sællegar kýr út´á túni. Ljósm. mm

Tífalt meiri eftirspurn en framboð af kvóta

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn 1. september síðastliðinn. Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 89 gild tilboð um kaup en sölutilboð voru sjö. Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 439 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 270 kr./ltr. Greiðslumark sem boðið var fram nam 379.072 lítrum en óskað var eftir að kaupa fjórar milljónir lítra. Af kauptilboðum eru sjö sem fá úthlutun úr forgangspotti nýliða. „Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Atvinnuvegaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram.“