Tvö sveitarfélög á Vesturlandi taka þátt í prófun á rafrænni kjörskrá

Þjóðskrá mun prófa rafræna kjörskrá í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun, 29. ágúst. Öllum sveitarfélögum landsins var boðin þátttaka í prófunum og 20 sveitarfélag þáðu boðið. Hér á Vesturlandi eru tvö sveitarfélög sem prófa þetta og er það Eyja- og Miklaholtshreppur og Sveitarfélagið Stykkishólmur. Í kjördeildum þeirra sveitarfélaga sem taka þátt verður tölva á staðnum til að prófa rafræna kjörskrá. Þótt sveitarfélög taki þátt í prófununum fer kosning fram með hefðbundnum hætti. Áfram verður merkt við kjósendur í prentaðri kjörskrá samhliða skráningu í rafræna kjörskrá.