
Hátíðarmessa að lokinni endurbyggingu Dagverðarneskirkju
Dagverðarneskirkja í Dölum var reist árið 1934. Undanfarin ár hefur heimafólk og velunnarar kirkjunnar unnið að stórfelldum endurbótum á kirkjunni og í blíðskaparveðri sunnudaginn 16. ágúst var fyrsta guðsþjónustan haldin í kirkjunni og jafnframt fagnað uppgerð kirkjunnar. Dagverðarneskirkja tilheyrir nú Staðarfellssókn en var áður sóknarkirkja Dagverðarnessóknar. Bára Sigurðardóttir í Lyngbrekku er formaður sóknarnefndar Staðarfellssóknar og Hollvinafélags Dagverðarneskirkju. Hún ásamt öðru stjórnarfólki hefur verið vakin og sofin yfir öllum málum sem snerta kirkjuna. „Það var sannarlega hátíðarstund og fagnaðarefni að sjá hversu margir komu og tóku þátt í þessum fögnuði vegna endurbyggingar Dagverðarneskirkju. Bestu þakkir til allra sem komu og skemmtu með söng og ræðum og gerðu þennan dag ógleymanlegan,“ segir Bára.