
Fjögur lið hjá ÍA voru skráð til keppni á Gæðabakstursmótinu í 6. flokki drengja. Gísli þjálfari nýbúinn að gera upp síðasta leikinn með drengjunum. Ljósm. óhk.
Fjögur lið frá ÍA á Gæðabakstursmótinu
Árlegt Gæðabakstursmót knattspyrnudeildar Aftureldingar fór fram um helgina, 23. og 24. ágúst, á Tungubökkum og á íþróttasvæðinu að Varmá í Mosfellsbæ. Alls voru 105 lið frá 21 félagi skráð til leiks í tveimur aldursflokkum. Góð þátttaka var frá ÍA á mótinu en Skagamenn sendu fjögur lið til keppni í strákafloki á laugardeginum. Leikið var í 6. flokki og var sjö manna bolti spilaður, en metþátttaka var að þessu sinni og fór hluti mótsins í fyrsta sinn fram á nýjum knattspyrnuvelli að Varmá, sem tekinn var í notkun í vor. Stelpurnar tóku síðan við keflinu á sunnudeginum og héldu knattspyrnuveislunni áfram.