
Liðsmynd af ÍA fyrir leik. Ljósm. Jón Gautur foto.
Skagamenn sterkari aðilinn í jafnteflisleik
ÍA og FH skildu jöfn, 1:1, í 20. umferð Bestu deildar karla á Elkem-vellinum á Akranesi í gær. Skagamenn lentu undir í lok fyrri hálfleiks en komu mun ákveðnari til leiks eftir hlé. Gísli Eyjólfsson jafnaði metin með glæsilegu skallamarki og ÍA sótti í kjölfarið hart að sigurmarkinu, en varð að lokum að sætta sig við eitt stig.