
Grunnskólar á Vesturlandi að hefja starfsemi
Grunnskólar á Vesturlandi eru nú að hefja starfsemi að nýju eftir sumarfrí og í vikunni fjölgar verulega börnum á ferli á götunum á morgnana og síðdegis. Fyrir mörg þeirra eru stór tímamót fram undan, ekki síst þau yngstu sem eru að stíga sín fyrstu skref í grunnskóla.
Skólabyrjun er spennandi tími fyrir smáfólkið. Nýtt umhverfi, nýir félagar og ný verkefni taka við og mikilvægt er að börnin fái bæði tíma og stuðning til að venjast breyttum takti. Hlutverk grunnskólanna er, í samstarfi við heimilin, að stuðla að alhliða þroska nemenda og foreldrar gegna jafnframt mikilvægu hlutverki í námi og skólagöngu barna sinna. En skólabyrjunin kallar líka á aukna aðgát í umferðinni. Fjöldi barna mun ganga eða hjóla til og frá skóla og sum þeirra eru að fara nýja leið ein í fyrsta sinn. Börn hafa ekki sömu yfirsýn og reynslu í umferðinni og fullorðnir og geta brugðist óvænt við.
Ökumenn eru því hvattir til að draga úr hraða í nágrenni skóla, gangbrauta og íbúðagatna og vera sérstaklega vakandi á þeim tímum þegar börnin eru á leið í og úr skóla. Augnabliks athyglisskortur getur haft alvarlegar afleiðingar og því eiga símar og annað sem dregur athyglina frá akstrinum ekkert erindi undir stýri. Foreldrar geta einnig lagt sitt af mörkum með því að fara göngu- og hjólaleiðina með yngstu börnunum í skólann áður en þau fara ein af stað - benda þeim á örugga staði til að þvera götur og minna á mikilvægi þess að nota merktar gangbrautir, stoppa og líta vel til beggja átta.
Skólaganga er stór og mikilvægur hluti af lífi barna. Þegar skólastarfið hefst að nýju er því góð regla fyrir okkur hin að hægja aðeins á okkur, sýna þolinmæði og gefa smáfólkinu það svigrúm sem það þarf. Förum varlega, það dýrmætasta á götunum næstu daga er ekki endilega inni í bílunum.

