
Fyrsta raflínunefndin skipuð
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað fyrstu raflínunefndina á Íslandi þ.e. raflínunefnd um Holtavörðuheiðarlínu 1, sbr. ákvörðun ráðherra 14. nóvember síðastliðinn. Nefndin er skipuð í samræmi við ákvæði í skipulagslögum frá árinu 2023 og er tilgangur hennar að brúa ágreining og tryggja að stórframkvæmdir, sem varða mikilvæga þjóðarhagsmuni, geti gengið eftir á málefnalegan og skilvirkan hátt. Umdeilt hefur verið að ráðuneytið beiti sér fyrir skipan raflínunefnda, en eðli þeirra er að draga úr vægi skipulagsvalds sveitarfélaga. Engu að síður hafa þau sveitarfélög sem um ræðir einn fulltrúa hvert í raflínunefnd.