Sigurbjörg Ottesen sá um fundarstjórn. Ljósm. tfk

Áfram Ísland hreyfingin með opinn fund

Hreyfingin Áfram Ísland, sem er mótfallin er því að Ísland sæki að ný um aðild að Evrópusambandinu, hélt opinn fund í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði í gær. Þetta var síðasti fundur hreyfingarinnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi en haldnir hafa verið nokkrir fundir víðsvegar um landið undanfarin misseri.