Lið Golfklúbbsins Vestarr sem hafnaði í þriðja sæti. Ljósm. Vestarr

Skemmtilegt golfmót á Grundarfjarðarvelli

Íslandsmót golfklúbba 50 ára og eldri í 2. deild kvenna fór fram á Grundarfjarðarvelli dagana 20. og 21. ágúst. Níu sveitir mættu galvaskar og tóku þátt en aðstæður til golfiðkunar eru með betra móti þessa dagana; völlurinn glæsilegur og öll umgjörð til fyrirmyndar. Golfklúbbur Akureyrar stóð uppi sem sigurvegari og vann sér rétt til að spila í 1. deild á næsta ári. Sameiginlegt lið GHD og GFB varð í öðru sæti og heimakonur í Golfklúbbnum Vestarr enduðu í því þriðja. Golfklúbbur Borgarness hafnaði í fjórða sætinu eftir harða keppni. Vegna veðurútlits á laugardeginum var ákveðið að klára mótið á föstudeginum með því að spila 4. og 5. umferðina sama daginn. Þær umferðir voru því 9 holur í stað 18. Mótsstjórn og sjálfboðaliðar geta gengið stoltir frá þessu móti enda keppendur mjög ánægðir að móti loknu.