Verðlaunamynd Stefaníu Rakelar.

Stefanía Rakel á verðlaunamynd Hvalfjarðardaga

Úrslit eru ráðin í ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga 2026 en þátttaka var með besta móti. Alls bárust 120 ljósmyndir frá 22 þátttakendum undir þemanu „Hvalfjarðarsveit – Allt milli himins og jarðar.“ Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar valdi tíu myndir úr hópi innsendra verka sem þóttu skara fram úr. Myndirnar voru til sýnis í stjórnsýsluhúsinu á Hvalfjarðardögum og í kjölfarið gafst almenningi kostur á að velja sína uppáhaldsmynd í rafrænni kosningu.