
Meðfyljandi mynd er skjáskot úr símamyndskeiði sem tekin var á vettvangi óhappsins. Ljósm. RUV
Mildi að ekki varð slys á fólki
Betur fór en á horfðist þegar jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl við Grafarland í Dölum á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Báðir bílar höfnuðu utan vegar, andstætt sinni akstursstefnu, og flutningabíllinn fór á hliðina. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, sagði í samtali við fréttavef RUV að annar ökumaðurinn hafi verið fluttur af vettvangi með sjúkrabíl. Hann hafi þó aðeins verið með minni háttar áverka. Hinn ökumaðurinn slapp ómeiddur. Talið er líklegt að ökumaður jeppans hafi sofnað undir stýri og ekið yfir á rangan vegarhelming.