
Stýrivextir hækkaðir í 8 prósent
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti í morgun ákvörðun sína um að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Meginvextir stofnunarinnar, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8%. Fjórir af fimm nefndarmönnum studdu hækkunina en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Þetta er þriðja vaxtahækkunin í röð en vextir voru einnig hækkaðir um 0,25 prósentustig í mars og maí. Ákvörðunin var í samræmi við spár greiningardeilda bankanna.