
Beint frá býli dagurinn verður á Laugum í Sælingsdal á sunnudaginn
Sunnudaginn 23. ágúst klukkan 13-16 verður matarmarkaður í tilefni af Beint frá býli deginum sem er nú haldinn fjórða árið í röð. Venju samkvæmt er viðburðurinn haldinn á einum stað á Vesturlandi og að þessu sinni á Laugum í Sælingsdal í umsjón Beint frá býli samtakanna og ábúenda í Ásgarði. Á sunnudaginn munu heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur úr landshlutanum mæta að Laugum til að kynna og selja vörur sínar. Dýragarðurinn á Hólum verður á staðnum, sundlaugin opin með veitingar til sölu og meira að segja verður hægt að fara með kaffi og ís út í pott. „Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eiga skemmtilegan dag saman,“ segir í tilkynningu frá samtökunum Beint frá býli.
