Hringvegurinn lokaður við Borgarnes næstu tvö kvöld

Mánudagskvöldið 17. ágúst og þriðjudagskvöldið 18. ágúst er stefnt á að malbika Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brú yfir Borgarfjörð. Veginum er lokað á meðan framkvæmdum stendur og verður merkt hjá leið um Borgarfjarðarbraut. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 bæði kvöldin. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu frá Colas.