
Dagverðarneskirkja í Dölum
Sunnudaginn 16. ágúst n.k. verður guðsþjónusta í Dagverðarneskirkju í tilefni uppgerðar kirkjunnar. Hefst hún kl. 13:00 og að henni lokinni verður kaffi á Laugum í Sælingsdal kl. 15:00. Það eru sr. Snævar Jón Andrjesson og sr. María Guðrúnar Ágústsdóttir sem stýra athöfninni í kirkjunni og organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Skessuhorn greindi frá því í júlí í fyrra að þá væri stórum áfanga lokið í viðgerðum á ytra byrði kirkjunnar og umhverfi hennar: