Þær stöllur í sölubásnum. Ljósm. af

Selja handverk og límonaði við Skattstigann

Þessar ungu handverksdömur í Ólafsvík, þær Dagný Stefánsdóttir og Oliwia Pretko, hafa komið upp sölutjaldi fyrir helgar við svokallaðan ,,skattstiga“ í Ólafsvík. Þar selja þær handgerð armbönd, heimagert límonaði og smákökur sem þær baka. Segja þær að vel hafi verið tekið á móti þeim bæði af heimamönnum sem ferðamönnum, en þær segjast ætla að hafa opið þegar vel viðrar. „Við höfum verið að búa armbönd til í sumar og vildum selja. Það hefur bara gengið ágætlega,“ sögðu þær.