Lilja Björg Ágústsdóttir í ungmennahúsi Dalabyggðar. Ljósm. óhk

Dalabyggð fær styrk til uppbyggingar og byggðafestu

Dalabyggð hefur hlotið 23,5 milljóna króna styrki úr byggðaáætlun til tveggja metnaðarfullra verkefna sem ætlað er að efla nýsköpun, atvinnuþróun og byggðafestu í sveitarfélaginu. Sótt var um styrkina í gegnum Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), sem hafa umsjón með verkefnunum í samstarfi við Dalabyggð. Stærri styrkurinn, 13,5 milljónir króna, rennur til uppbyggingar Auðarstofu, nýs nýsköpunar- og þekkingarseturs í Búðardal. Þar er stefnt að því að skapa aðstöðu fyrir frumkvöðla, atvinnurekendur og sérfræðinga með verklegu vinnurými og öflugri fræðslustarfsemi. Um þessar mundir er unnið að stefnumótun og hönnun setursins og áformað er að hefja framkvæmdir í haust. Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi SSV hefur unnið að hönnun rýmisins í samstarfi við Lindu Guðmundsdóttur, verkefnastjóra Dala Auðs, og sveitarstjóra Dalabyggðar.