
Innleiða nýtt kerfi fyrir byggingarleyfisumsóknir
Snæfellsbær hefur tekið í notkun nýtt stafrænt umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi sem þróað hefur verið af Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS). Með innleiðingunni bætist sveitarfélagið í hóp þeirra sveitarfélaga sem þegar nýta kerfið, en markmiðið er að öll sveitarfélög landsins verði tengd því fyrir árið 2027.