Hvasst til hádegis þar sem vindur stendur af fjöllum

Vegna sunnan hvassviðris er gul viðvörun í gildi fyrir spásvæðið Breiðafjörð til hádegis í dag. Viðvörun er í gildi fyrir norðanvert Vesturland, Vestfirði, Norðurland og miðhálendið. Það er sunnan 13-20 m/s og vindhviður um og yfir 30 m/s við fjöll. Síðdegis lægir á Vesturlandi og Vestfjörðum. Vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi.