
Dúóið Funi á tónleikum í Hallgrímskirkju á sunnudaginn
Sumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ hafa verið fjölsóttir það sem af er sumars. Fjórðu tónleikarnir verða á sunnudaginn 19. júlí kl. 16.00 og flytjendur eru Dúóið Funi ásamt Andra Eyvinds sem syngur og sér um hljóðmynd. Einnig verður Áróra Heiður Andradóttir gestasöngvari á tónleikunum.
Dúóið skipa þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster sem hafa verið ötulir liðsmenn þess að kynna og efla íslenska þjóðlagatónlist, stemmur og rímur. Bára er formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar og hefur lagt sérstaklega fyrir sig flutning á tónlist fyrri alda sem og að semja og útsetja lög við forna texta og rímur. Bára leikur á kantele, langspil og shruti og Chris Foster á langspil auk þess að syngja.
Flest lög á tónleikunum eru af nýrri geislaplötu, Gárur, og einnig hljóma hljóðupptökur úr íslenskri náttúru eftir Buzby Birchall og hljóðmyndir eftir Konstantine Vlasis. Aðgöngurmiðar, kr. 3.500, eru seldir við inngang.
-fréttatilkynning