Hrefna og Hrafnhildur. Ljósm. ssv

Hrafnhildur tekur við framkvæmdastjórn af Hrefnu

Hrefna Bryndís Jónsdóttir lætur nú af störfum sem framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands hf. og við starfinu tekur Hrafnhildur Tryggvadóttir. Hrefna hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra frá aldamótaárinu 2000. Hún lauk rekstrarhagfræði frá Háskólanum á Bifröst en frá útskrift úr námi hefur Hrefna starfað hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Hún hóf störf sem atvinnuráðgjafi hjá SSV 1996 en frá aldamótaárinu auk þess verið framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands hf.