
Hvassviðri við fjöll og gul viðvörun
Í dag verður allhvöss sunnan- og suðvestan átt, víða 13-20 m/s, en 5-13 m/sek sunnan- og austanlands. Dálítil súld á Suður- og Vesturlandi, annars bjart með köflum. Hiti 10 til 27 stig, hlýjast um landið norðaustanvert. Fer að rigna vestantil seinnipartinn, talsverð rigning þar í kvöld. Sunnan- og suðvestan 5-13 á morgun, en heldur hvassari norðvestantil fram eftir degi. Rigning með köflum, einkum suðvestan- og vestanlands. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast á Austurlandi.
Til miðnættis í kvöld er í gildi gul viðvörun vegna hvassviðris, einkum við fjöll. Meðal annars er varað við sterkum hviðum á norðanverðu Snæfellsnesi og víðar um norðvestanvert landið. Hviður gætu náð allt að 30 metrum á sekúndu, sem er varhugavert fyrir léttbyggð hjólhýsi og húsbíla sem taka á sig mikinn vind.