
Opnar afmælissýninguna Draumferðir gyðjunnar
Ásta Salbjörg Alfreðsdóttir á Akranesi verður 70 ára á morgun, fimmtudaginn 9. júli. Í tilefni afmælis eiginkonunnar hefur Bjarni Þór Bjarnason listamaður undanfarna mánuði undirbúið stóra sýningu sem opnuð verður í Gallerý Bjarna Þórs við Kirkjubraut 1 á afmælisdegi Ástu. Á sýningunni verða 35 verk en 25 þeirra eru unnin með nýrri blandaðri aðferð, svokölluð Monotype grafísk tækni, þar sem unnið er á afar þunnan japanskan pappír. Bjarni þrykkir, spreyjar, klippir og límir myndirnar á þennan þunna pappír. Myndefnið er sömuleiðis óvenjulegt en Bjarni Þór tengir myndverk þessi gyðjunámi því sem Ásta Salbjörg hefur stundað undanfarinn tæpa áratug. Ásta Salbjörg gefur síðan myndunum nafn og skrifar um þær stuttan texta. Blaðamaður Skessuhorns leit við hjá þeim hjónum í síðustu viku þar sem þau voru að leggja lokahönd á sýninguna.

Verkin tengd námi í fornum kvennafræðum
„Meirihluti mynda á sýningunni hjá Bjarna mínum tengjast náminu mínu í fornum kvennafræðum sem ég og nokkrar vinkonur mínar hafa stundað hjá Valgerði Bjarnadóttur á Akureyri undanfarin átta ár,“ segir Ásta Salbjörg, en auk hennar hafa Bára og Sigga vinkonur hennar stundað námið. „Við byrjuðum á að læra um fornar kvenhetjur í Súmeríu sem voru uppi fyrir þrjú þúsund árum. Fyrsta námsárið vorum við að læra um Brísingamenið, þá Gullveigu og næsta vetur þar á eftir um Djúpúðgu. Þá lærðum við um helgar konur í kristni, Rótfestuna og loks Kvenhetjuferðina. Valgerður kennarinn okkar er með rekstur undir heitinu Vanadís – rætur okkar og draumar. Hún er félagsráðgjafi, með BA próf í heilræðum fræðum með áherslu á draumafræði. Hún er auk þess með MA próf í feminískri trúarheimspeki með áherslu á norræn goðafræði og gyðjutrú.“
Er og get
Ásta útskýrir að á þessum námskeiðum í fornum kvennafræðum sé leitað inn á við. „Við skoðum stöðu kvenna í gegnum tíðina og ættarræturnar. Gyðjurnar til forna koma mikið við sögu og ég hef verið að reyna að máta mig við þær. Í rauninni er ég að næra í mér nördinn með því að skoða og tengja við formæður, völvur, gyðjur og shamanismann. Mín uppáhalds gyðja er undirheimagyðjan Inanna frá Súmeríu og Freyja norræna gyðjan okkar. Námið hjá Valgerði er lifandi veruleiki sem mótast á leiðinni út frá lífstilgangi, máttargjörð og hetjuferð hverrar gyðju. Þegar við svo vinnum verkefni út frá þessu kemur manni á óvart hvað ég er og get.“
Mynda systralag
Ásta útskýrir að gyðjumenning sé shamanisk, en gyðjur þessar voru heilarar og gjarnan störfuðu þær sem ljósmæður. „Gyðjunámið hefur verið sem ævintýri líkast og í því getur allt gerst. Einn hluti námsins hefur verið Draumaferðirnar, sem ég elska. Þá spilar Valgerður á trommuna sína og við förum á flakk um undirheima, miðheima og uppheima með máttardýrinu okkar. Mitt máttardýr er hvítur úlfur. Ég hef kynnst mörgum konum á öllum aldri, í öllum stöðum og stéttum og við höfum myndað Systralag,“ segir Ásta.
Hugfanginn af verkefninu
Ásta Salbjörg segir að seiðkallinn hennar, hann Bjarni Þór, hafi alla tíð stutt hana í náminu og í öllu því sem tengist gyðjunum. „Hann tók þá ákvörðun fyrir níu mánuðum síðan að undirbúa afmælissýningu fyrir konuna sína og tengja sýninguna við afmælið mitt með því að vinna með gyðjurnar. Bjarni ákvað að prófa sig áfram með að vinna myndirnar með grafískri tækni sem heitir monotypa en heldur svo áfram að vinna þær með blandaðri tækni. Hann sem sagt þrykkir, málar, spreyjar, klippir og límir. Í allri þessari vinnu er hann með örþunnan og viðkvæman japanskan pappír. Raunar hefur Bjarni verið alveg hugfanginn af þessu verkefni og núna heilli meðgöngu síðar er þessi glæsilega sýning orðin að veruleika og sýninguna kallar hann Draumferðir gyðjunnar.“
Bjarni útskýrir fyrir blaðamanni að það megi varla anda á þennan japanska pappír, þá skemmist hann. Þetta hafi því verið skemmtileg áskorun að takast á við. „Ég vildi gera öðruvísi sýningu en fólk þekkir hjá mér, veita sjálfum mér áskorun. Gera sýningu og tileinka hana Ástu minni og hennar fræðum. Sjálfur botna ég lítið í þessum fornu kvennafræðum, en styð Ástu og vinkonur hennar alla leið í því sem þær eru að gera.“ Ásta bætir við að í þessum tilraunum hafi Bjarni Þór verið eins og lítill strákur að leika sér. Gleymt stað og stund við að móta eitthvað alveg nýtt og honum framandi.
Á gulbrúnum Moskvich
Ásta Salbjörg og Bjarni Þór hafa verið par í 32 ár. „Þegar við kynntumst var ég þriggja barna móðir og fráskilin. Bjarni Þór hafði þá misst tvær fyrri eiginkonur sínar,“ segir Ásta. Þau eiga ekki börn saman, en samtals eru börnin sex og barnabörnin tíu. „Við smullum fljótlega saman eftir að við kynntumst,“ segja þau bæði. En hvar var það, spyr blaðamaður. „Á balli á veitingastaðnum Langasandi,“ svara þau að bragði. Ásta segist hafa verið nýflutt á Akranes með börnin sín og hafi ákveðið að fara á þennan dansleik. „Fyrsti maðurinn sem ég sé var Bjarni Þór sem gjörsamlega límir sig við mig allt ballið. Seinna viðurkenndi hann að það hafi verið vegna þess að hann var að sýna annarri dömu að hann vildi ekkert hafa með hana að gera.“ Þau hlæja að þessu. „Á þessum tíma var ég hætt að drekka svo ég keyrði heim, var á gulbrúnum, ægilega ljótum Moskvich. Bjarni vildi endilega sýna mér kettlinga sína. Ég náttúrlega kíki til að skoða kettlingana hans og hafði aldrei séð jafn mikið af hreinum þvotti á einum sófa,“ segir Ásta og hlær.
Eftir þessi fyrstu kynni liðu nokkrir dagar án þess að þau hefðu samband hvort við annað. „Ég var farinn að hugsa hvort það yrði ekkert meira úr þessu hjá okkur,“ rifjar Bjarni upp. „Svo hringir hún einn daginn og býður mér að koma til sín í te. Þá hafði ég aldrei drukkuð te og hef reyndar ekki gert síðan,“ segir Bjarni og hlær. „En saman höfum við verið í gegnum þykkt og þunnt eftir það.“
Ásta segir að það besta við öðlinginn Bjarna sé hversu barngóður hann er og hann hafi strax sýnt börnunum hennar og afkomendum þeirra mikla umhyggju. „Hann Alli sonur minn slasast mjög alvarlega árið 1996. Alli var alla tíð mikill bílatöffari og elskaði flotta bíla. Þegar Bjarni Þór mætir loks í hlaðið á gamalli Lödu Sport leist honum ekkert á manninn. Það átti þó aldeilis eftir að breytast og var Bjarni honum ómetanleg stoð og stytta eftir slysið og það langa endurhæfingarferli sem beið hans. Alveg á sama hátt hefur hann reynst Sallý minni og dætrum hennar gríðarlega vel og þær bókstaflega dá hann,“ segir Ásta.
Sýningin Draumferðir gyðjunnar verður opnuð í galleríinu við Kirkjubraut 1 á morgun, fimmtudaginn 9. júlí klukkan 15. Opið verður fram eftir kvöldi. Sýningin mun svo verða opin alla daga í júlí frá klukkan 16 til 18.