
Hefja söfnun fyrir tannlæknastól á Brákarhlíð
Ákveðið hefur verið að koma upp tannlæknaþjónustu við hjúkrunarheimilið Brákarhlíð í Borgarnesi. Nú hefur Rótarýklúbbur Borgarness hrundið af stað söfnun fyrir verkefnið. „Með þessu framtaki verður bæði hægt að veita heimilisfólki tannlæknaþjónustu í nærumhverfi þess og skapa íbúum öryggistilfinningu, en margir þeirra eiga við veikleika að stríða,“ segir í tilkynningu frá klúbbnum. Ábyrgðarmaður þess er Magnús B Jónsson á Hvanneyri. Hann segir að mikilvægt sé að aðstaða og tækjabúnaður sé í eigu stofnunarinnar sjálfrar. Sérbúinn tannlæknastóll er hluti slíks búnaðar og kostar um 7,5 milljónir króna og er fjármögnun umfram getu Brákarhlíðar nokkuð óljós. „Rótarýklúbbur Borgarness hefur ákveðið að standa að söfnun meðal fyrirtækja og almennings á starfssvæði klúbbsins til að aðstoða við að fjármagna kaupin,“ segir Magnús.
Framlag má leggja inn á reikning klúbbsins: 0354-03-400624 og kt: 530586-2009 fyrir 31. ágúst næstkomandi. Enginn kostnaður fellur því á söfnunarátakið sem slíkt.
Bætt aðgengi að nauðsynlegri þjónustu
Í viðtali við Ingu Dóru Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra Brákarhlíðar, sem birtist í Skessuhorni í vor kom fram að til stæði að kaupa tannlæknastól og útbúa aðstöðu fyrir tannlækni í húsinu með það í huga að bæta aðgengið að slíkri þjónustu fyrir heimilisfólk og aðra sem á þurfa að halda. Margt eldra fólk býr auk þess í nágrenni heimilisins og má sem dæmi nefna að sex hæða fjölbýlishús fyrir eldra fólk er tengt Brákarhlíð með tengibyggingu. Inga Dóra segir að hugmyndin um tannlæknaþjónustuna hafi þróast í samtali við Hilmi Valsson tannlækni í Borgarnesi sem er nú eini starfandi tannlæknirinn í bænum. „Aðgengið að stofunni hjá honum er ekki sérlega gott fyrir þá sem eiga erfitt með gang og hann velti fyrir sér hvaða leið væri best til að bæta aðgengi íbúa heimilisins að þessari þjónustu,“ sagði Inga Dóra. „Í framhaldinu var ákveðið að freista þess að setja upp aðstöðu fyrir tannlækni hér í Brákarhlíð og við sáum möguleika á að gera það með ákveðnum breytingum hér innanhúss.“ Hún sagði í vor að þess yrði freistað að leita til samfélagsins með hluta af fjármögnun fyrir verkefnið, en vonast til að það gangi upp og að aðstaðan verði komin í gagnið næsta haust.
Nú hefur Rótarýklúbbur Borgarness brugðist við kallinu og hafið söfnun fyrir kaupum á nýjum tannlæknastól á Brákarhlíð.