Pramma- og bátarallý fór fram í höfninni. Meðfylgjandi ljósmyndir tóku: Lorenzo og Szymon.

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal fór fram um helgina – myndasyrpa

Það fór vel á með Dalamönnum og gestum á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal um síðustu helgi. Hátíðin fer fram annað hvert ár. Veðurguðirnir sýndu hátíðarhöldunum mildi með blíðskaparveðri eins og víðar um landið um liðna helgi. Það þýddi líka að mikið var um að vera í heyskap í héraðinu á sama tíma. Dagskráin var eins og vanalega fjölbreytt og fyrir alla aldurshópa. Á fimmtudag hélt harmonikkufélagið Nikkólína og Harmonikkuvinir Vesturlands tónleika í Dalabúð þar sem stiginn var dans. Mikið var um að vera fyrir börn svo sem karaókí, rappsmiðja, báta- og prammarallý og fleira mætti nefna. Einn af stærri viðburðum helgarinnar voru vígslutónleikar nýja flygilsins í Dalabúð og tónlistardeild Auðarskóla. Þá var góð stemning á laugardagskvöldinu þegar hið margrómaða kjötsúpurölt var og varðeldur með brekkusöng við stjórnsýsluhúsið í Búðardal.