
Aðalsteinn Valur Grétarsson sigraði í ljósmyndasamkeppninni í fyrra með þessari glæsilegu mynd af íslenska haferninum. Ljósm. avg
Grundarfjarðarbær efnir enn og aftur til ljósmyndasamkeppni
Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar er haldin í sautjánda sinn á þessu ári. Menningarnefnd bæjarins heldur utan um keppnina í ár en þemað er „menning“. Ákveðnar reglur gilda um keppnina en samkvæmt þeim verða myndirnar að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2025 til 16. nóvember 2026. Hver og einn þátttakandi má senda inn að hámarki tvær myndir. Þær myndir sem sendar eru inni í keppnina mega ekki hafa verið birtar á neinum miðlum fyrr en að verðlaunaafhendingu lokinni.