Vegur fýkur burt

Þar sem vegklæðningu lýkur við Gunnarsstaði í Dölum, á leiðinni út á Skógarströnd, hefur myndast allmikill stallur. Efni í malarveginum fokið burt og á giska 15 cm lækkun er á veginum (þar sem gosflaskan er). Engin varúðarmerking er við þennan stað og því hafa ökumenn og farþegar fengið högg þótt ekið sé á löglegum hraða. „Ég kom að holunni á 70 km hraða og það var dágott högg, bæði fyrir ökutæki og farþega,“ sagði vegfarandi sem sendi Skessuhorni meðfylgjandi mynd.