Tilraunaborun á Grundartanga

Vinna hefst brátt við borun rannsóknarborholu á Grundartanga, en framkvæmdin fer í fullan gang í þessum mánuði og gert er ráð fyrir að henni ljúki í september. Morgunblaðið greindi frá. Um er að ræða skref í undirbúningi verkefnisins „Decarbonizing Grundartangi“ og miðar rannsóknarborunin að því að afla gagna um hvort berglögin á svæðinu geti hentað til bindingar koldíoxíðs. Standa vonir til að borunin varpi ljósi á gegndræpi berglaganna, sprungukerfi og flæðiskilyrði neðanjarðar. Verkefnið hlaut 199 milljóna króna styrk úr Loftslags- og orkusjóði en að boruninni standa Carbfix, Norðurál, Elkem og Þróunarfélag Grundartanga.