Gísli Jónatan Pálsson með vel haldna bleikju.

Góð bleikjuveiði á Arnarvatnsheiði

Nokkrir galvaskir veiðimenn fóru nýverið í sína árlegu veiðiferð upp á Arnarvatnsheiði, nánar til tekið í Arnarvatn stóra. Blaðamaður hafði samband við Anton Guðmundsson, sem fer fyrir hópnum, og spurði hann út í veiðina. „Arnarvatnsheiðin svíkur aldrei veiðimann sem kann til verka og ber virðingu fyrir náttúrunni,“ segir Anton. Að sögn hans var bleikjan einstaklega vel upplögð og aflabrögðin voru með besta móti.

Góð bleikjuveiði á Arnarvatnsheiði - Skessuhorn