Að hluta er neysluvatn Akurnesinga af fjallinu og því er nauðsynlegt að lýsa það. Ljósm. úr safni.

Lágur þrýsingur á neysluvatni næsta mánudagskvöld

Að kvöldi 22. júní verður nýr búnaður tekinn í notkun á Akranesi

Veitur hafa lokið endurnýjun lýsingartækja fyrir neysluvatn á Akranesi og nú er komið að því að taka nýju tækin í notkun. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að til að koma nýju tækjunum í virkni þarf tímabundið að minnka þrýsting á köldu vatni frá klukkan 22:00 mánudaginn 22. júní til klukkan 02:00 aðfaranótt þriðjudagsins 23. júní. „Ekki er gert ráð fyrir að vatnslaust verði á Akranesi á meðan á vinnunni stendur. Hins vegar verður þrýstingur á kalda vatninu lægri en venjulega. Til að draga úr líkum á truflunum biðjum við íbúa og fyrirtæki að fara sparlega með kalt vatn á fyrrgreindu tímabili. Við þökkum fyrir skilninginn og samstarfið á meðan þessari vinnu stendur,“ segir í tilkynningu.