
Sumarið 2011 fór fram styrktarleikur á Akranesvelli þar sem um fimm þúsund gestir mættu til að horfa á vináttuleik ÍA og KR. Fyrr þetta ár hafði Steini Gísla, sem lék lengst af sínum ferli með þessum liðum, greinst með krabbamein. Hér ræðir Bjarni Fel við Sigurstein. Ljósm. úr safni Skessuhorns/þá
Vígðu minningarstein um Sigurstein Gíslason
Fyrir bikarleik ÍA og Víkings á föstudagskvöldið var afhjúpaður minningarsteinn til heiðurs Sigursteini Gíslasyni knattspyrnumanni. „Steini Gísla hafði djúp og varanleg áhrif á ÍA og allt samfélagið sem umlykur félagið. Steinninn hefur verið reistur við leikmannainnganginn á Elkemvellinum – þar sem leikmenn ganga út á völlinn. Það er vel við hæfi, því þaðan hóf Steini ótal sinnum gönguna inn á völlinn til þess að leiða sitt lið til sigurs,“ segir í tilkynningu frá KFÍA. Til að heiðra minningu Steina Gísla mun leikdagsboltinn framvegis hvíla á steininum og verða tekinn með af honum inn á völlinn fyrir alla leiki ÍA á Elkemvellinum.