
Skemmtileg svipmynd úr leiknum. Ljósm. Jón Gautur poto
Íslandsmeistrarnir voru of stór biti
Heil umferð var spiluð í átta liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KKÍ á föstudag og laugardag. Það var hlutskipti Skagamanna að taka á móti Íslandsmeisturum Víkings á Akranesvelli á föstudagskvöldið. Kjöraðstæður voru á leiknum, rjómablíða, fremur hægur vindur og vel mætt á völlinn. Það voru Víkingsmenn sem unnu með tveimur mörkum gegn einu. Mörkin létu þó standa á sér. Það var síðan Óskar Borgþórsson sem kom gestunum yfir á 59. mínútu leiksins og Aron Elís Þrándarson bætti við seinna marki Víkings á 74. mínútu. Markús Páll Ellertsson minnkaði síðan muninn fyrir ÍA undir blálokin en þar við sat.