
Minningarsteininn gerði Lúðvík Karlsson. Ljósm. Borgarneskirkja
Vígðu minningarstein í Borgarneskirkjugarði
Síðastliðinn sunnudag var vígður minningarsteinn í Borgarneskirkjugarði. Steinninn ber heitið ,,Í bljúgri bæn“ og er eftir listamanninn Lúðvík Karlsson (Liston) í Grundarfirði. Steinninn er til minningar um andvana fædd börn og fósturmissi. Við athöfnina söng Kirkjukór Borgarness undir stjórn Jónínu Ernu Arnardóttur og Sigursteinn Sigurðsson ávarpaði gesti fyrir hönd sóknarnefndar. Séra Heiðrún Helga Bjarnadóttir sóknarprestur flutti hugvekju.