
Slökkva á einum ofni í sumar
Í kjölfar ákvörðunar Evrópusambandsins um að leggja á verndartolla á íslenskan kísilmálm, hafa forsvarmenn Elkem Íslands ákveðið að slökkva á einum þriggja ofna járnblendisverksmiðju félagsins á Grundatanga í sumar. Frá þessu er greint í frétt á Vísi þar sem m.a. er rætt við Álfheiði Ágústsdóttir forstjóra. Hvorki Ísland né Noregur, sem bæði eru stórir framleiðendur kísilmálms og aðilar að ESB í gegnum EES samninginn, fengu undanþágu frá aðgerðunum. Íslenskir stjórnmálamenn hafa sagt aðgerðirnar vonbrigði og að þær gangi gegn anda EES-samningsins.
Með því að draga úr framleiðslunni yfir sumartímann getur Elkem haldið öllu fastráðnu starfsfólki í vinnu. Lítið sem ekkert verður hins vegar um sumarstörf í verksmiðjunni og bitnar það m.a. á námsfólki og öðrum sem fengið hafa sumarvinnu hjá fyrirtækinu undanfarin ár.