
Blíðskaparveður á Sjómannadaginn á Akranesi – myndasyrpa
Hátíðarhöld voru á Akranesi í gær í tilefni Sjómannadagsins. Boðið var upp á dagskrá fyrir fjölskylduna á nokkrum stöðum í bænum, en mest var þó um að vera við höfnina. Messa var í Akraneskirkju að morgni og að því loknu var lagður blómsveigur að minnismerkinu á Akratorgi. Nýtt björgunarskip Björgunarfélags Akraness, Kristrún á Bjargi, var formlega vígt. Róðrakeppni var í höfninni og sigling var í boði fyrir gesti. Þá voru leiktæki sett upp við fiskmarkaðinn; hoppukastalar, bátasmíði og fleira í boði auk þess sem matarvagnar komu á svæðið. Kellingar gengu um Partana og Breiðina og sögðu sögur, ný sýning um fiskverkun var opnuð í bátaskýlinu í Görðum og tónleikar voru bæði í Akranesvita og Jaðarsbakkalaug. Loks voru konur í Slysavarnadeildinni Líf með árlegt og margrómað kaffihlaðborð í Jónsbúð. Meðfylgjandi myndir voru teknar á hátíðisdeginum.











