
Guðbjartur við ferðabílinn sinn Litla Rauð sem hefur flutt eiganda sinn um allar trissur. Aðra hlið bifreiðarinnar prýðir ljósmynd sem hann tók á Gæsavatnaleið. Á myndinni mundar hann kvikmyndavélina sem hann keypti á Grænlandi þegar hann var unglingur. Ljósm. þká
Sjóveikur í þrjátíu ár
Guðbjartur Gunnarsson fór í fyrsta túrinn til sjós 15 ára en það varð upphafið af meira en hálfrar aldar löngum, fjölbreyttum og farsælum ferli í sjómennsku og síðar kennslu. Þetta rifjar hann upp í samtali við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur blaðamann. Hann segir togaralífið hafa gert sér gott og vorkennir börnum í dag að búa ekki við það frjálsræði sem tíðkaðist áður fyrr.