Steinunn D. Garðarsdóttir, Kristján Lár Gunnarsson og Svanborg Siggeirsdóttir frá Björgunarsveitinni Berserkjum ásamt Sigurði Páli Jónssyni, formanni hafnarstjórnar í Stykkishólmi. Ljósm. gsp

Sjómannadagurinn í Stykkishólmi

Í morgun var blómum komið fyrir við minnisvarða látinna sjómanna í kirkjugarðinum og við höfnina í Stykkishólmi. Að því loknu var sjómannadagsmessa haldin í Stykkishólmskirkju þar sem Sr. Ursula Árnadóttir prédikaði og þjónaði fyrir altari.

Björgunarsveitin Bersekir sá um að panta og leggja blómsveiga við minnisvarðana. Fram hefur komið að fé sem safnast umfram kostnað við blómsveigana verður nýtt til viðhalds á minnisvarðanum við höfnina, meðal annars til endurnýjunar á ljóskösturum.