
Rússneska njósnaskiptið Yuri Ivanov. Ljósm. Landhelgisgæslan
Rússneskt njósnaskip vestan við landið
Landhelgisgæsla Íslands, í nánu samráði við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og herstjórnir Atlantshafsbandalagsins, fylgist nú grannt með ferðum rússnesks herskips sem siglir utan 12 sjómílna landhelgi landsins en innan efnahagslögsögunnar, n.t.t. á hafsvæðinu milli Íslands og Grænlands. „Um er að ræða rússneska njósnaskipið Yuri Ivanov sem fylgdist með æfingu Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi í síðustu viku. Skipið er með takmarkaðan vopnabúnað og sinnir fyrst og fremst njósnum og upplýsingaöflun, en engin merki eru um að neðansjávarinnviðum eða öryggi sjófarenda stafi ógn af skipinu,“ segir í tilkynningu frá LHG.