Frá vinstri: Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri, Björn Ásgeir Sumarliðason, Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir, Mattías Arnar Þorgrímsson, Þórhildur Eyþórsdóttir, Sigurður Grétar Jónasson, Rannveig Tenchi Ernudóttir og Kristján Hildibrandsson. Ljósm. gsp

Ný bæjarstjórn tekin til starfa í Stykkishólmi

Á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Stykkishólms, sem fram fór 4. júní síðastliðinn, var kosið í embætti forseta og varaforseta bæjarstjórnar auk þess sem tekin var ákvörðun um ráðningu bæjarstjóra til næstu fjögurra ára.