Flateyingar með þumalinn niður. Ljósm. aðsend

Flateyingar gefa Eyjólfi falleinkunn

„Það er allt í uppnámi af því Baldur er farinn,“ sagði Björn Samúelsson, húseigandi í Flatey á Breiðafirði, í samtali við fréttavefinn Vísi. Björn er jafnframt varamaður í nýkjörinni sveitarstjórn Reykhólahrepps. Hann skipulagði i gær ásamt fleiri eyjaskeggjum þögul mótmæli við „svívirðilegri“ ákvörðun Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra, sem ákvað nær fyrirvaralaust í síðustu viku að senda Breiðafjarðarferjuna Baldur til Vestmannaeyja, þar sem hún mun sigla samhliða Herjólfi milli lands og Eyja.

Þessi ákvörðun innviðaráðherra kom flatt upp á „þorparana“ í Flatey, þ.e. sumarhúseigendur og fólk með tengsl við eyjuna, sem efndi til þögulla mótmæla við bryggjuna í Flatey kl. 15 í gær, eftir að Baldur hafði tekið sína síðustu Flateyjarferð sína í bili. Björn var einn skipuleggjenda mótmælanna og segir að svo virðist sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hafi tekið ákvörðunina upp á sitt einsdæmi. Brotthvarf Baldurs komi á versta mögulega tíma; sumarvertíðin sé að hefjast, ferðaþjónustan í eyjunni að fara í gang og húseigendur farnir að huga að því að koma sér út í eyjuna. Fjöldi ferðamanna hafi sömuleiðis þegar átt bókaða ferð með ferjunni í júní. Þá hafði staðið til að opna Hótel Flatey í næstu viku, að sögn Björns, en þegar hefur ríkt mikil óvissa um rekstrarhorfur þess síðustu misseri. „Við bara trúðum ekki að hann myndi taka þessa ákvörðun svona fyrirvaralaust,“ sagði Björn í samtali við fréttastofu Vísis og Bylgjunnar.