
Svipmynd frá viðburðinum 2024. Ljósm. mm
Árlegt kaffihlaðborð í Jónsbúð í dag
Slysavarnadeildin Líf á Akranesi bregður ekki út af vananum á Sjómannadaginn og býður gestum og gangandi til rómaðs kaffihlaðborðs í Jónsbúð við Akurbraut frá klukkan 13:30 til 16:30 í dag. Þetta er árleg fjáröflun félagsins en allur ágóði rennur til þarfra verkefna í nærsamfélaginu. Verðinu er stillt í hóf en fullorðnir borga 3000 krónur en börn 6-12 ára 500 krónur.