
Kristinn Ólafsson sjómaður skolar úr ískarinu eftir löndun. Ljósmyndir: tfk
Höfnin iðar af lífi þessa dagana – myndasyrpa úr Grundarfirði
Það hefur verið mikið um að vera á höfninni í Grundarfirði síðustu misserin en nú eru skemmtiferðaskipin farin að mæta og bætist þar með ofan á hefðbundna starfsemi hafnarinnar. Búið er að fjölga starfsmönnum yfir mesta álagstímann og nóg af verkefnum fyrir alla. Meðfylgjandi er myndasyrpa frá síðustu viku.