Hér heldur Kristín Eir í Þyt frá Skáney, glæsilegasta hest mótsins. Ljósm. aðsendar

Úrslit Gæðingamóts Borgfirðings

Gæðingamót Hestamannafélagsins Borgfirðings var haldið í Borgarnesi laugardaginn 30. maí sl. Skráningar voru rúmlega 50 og for keppnin vel fram í ágætu veðri. Keppt var í hefðbundnum greinum gæðingakeppni sem og í gæðingatölti og sprettskeiði. Glæsilegasti hestur mótsins var valinn Þytur frá Skáney og knapi mótsins var Kristján Fjeldsted.